Virka daga 8–16Háheiði 2, 800 Selfoss
Baldvin og ÞorvaldurBaldvin og ÞorvaldurSöðlasmíðaverkstæði · Selfossi
Forsíða / Um okkur

Byggt á gömlum grunni

Baldvin og Þorvaldur er söðlasmíðaverkstæði og verslun á Selfossi með sögu sem nær aftur til 1905.

Sagan

  1. 1905Saga Baldvins og Þorvaldar teygir sig aftur til 1905. Baldvin Einarsson og Þorvaldur Guðjónsson söðlasmiðir eru mennirnir á bak við nafnið.
  2. 1907Söðlasmíðaverkstæðið stofnað í Reykjavík. Nokkrir eigendur áttu verkstæðið eftir daga Baldvins og Þorvaldar.
  3. 1981Verkstæðið flutt austur á Selfoss, þar sem það hefur verið rekið síðan.
  4. 1997Guðmundur Árnason og Ragna Gunnarsdóttir kaupa reksturinn um haustið og opna verslunina aftur eftir endurbætur í kjallaranum á Austurvegi 21 í byrjun desember.
  5. 1999Í ágúst flytur verslunin í stærra og betra húsnæði að Austurvegi 56.
  6. 2022Um haustið eru verslunin og verkstæðið flutt að Háheiði 2 á Selfossi.
Verslunin á Selfossi

Í versluninni kennir ýmissa grasa og alltaf er stefnan að vera með sem fjölbreyttast úrval, sem hentar sem flestum. Mikið úrval af reiðtygjum, fatnaði og vörum tengdum hestum, hestamennsku og útivist.

Skeifur í hillu

Fólkið á verkstæðinu

Starfsmenn eru þrír. Fjölbreytileiki verkefna er mikill og starfsfólkið leggur sig fram um að leysa vandamál viðskiptavinanna.

Guðmundur Árnason

Söðlasmíðameistari og eigandi

Lærði söðlasmíði hjá Pétri Þórarinssyni, sem lærði á verkstæði Baldvins og Þorvaldar, og tók sveinspróf í febrúar 1997. Hefur síðan lokið meistaranámi í söðlasmíði og útskrifað þrjá sveina.

Ragna Gunnarsdóttir

Eigandi

Lærður textílkennari frá KHÍ, útskrifuð vorið 1997.

Bára Másdóttir

Söðlasmíðameistari

Lærði hjá B&Þ og tók sveinspróf vorið 2009.

Upplýsingar

Fyrirtæki
Baldvin og Þorvaldur ehf
Kennitala
641197-2469
Heimilisfang
Háheiði 2, 800 Selfoss
Sími
482-1900
Netfang
verslun@baldvinogthorvaldur.is

Vöruúrvalið á vefnum

Vöruúrval hér á heimasíðu er langt frá því að vera tæmandi og hugsað til að gefa innsýn í vöruúrvalið. Endilega hafið samband ef einhverjar spurningar vakna.

Hafa samband