Söðlasmíðaverkstæðið
Framleiðsla, viðgerðir og sérsmíði á reiðtygjum og fylgihlutum fyrir hesta og menn – síðan 1907.
Eigin framleiðsla
Baldvin og Þorvaldur, söðlasmíðaverkstæði, var stofnað árið 1907 í Reykjavík. Það var síðan flutt austur á Selfoss árið 1981 og hefur verið rekið þar síðan. Núverandi eigendur tóku við rekstrinum í lok nóvember árið 1997.
Síðan þá hefur verið unnið markvisst að framleiðslu og viðgerðum á reiðtygjum og fylgihlutum fyrir hesta og menn. Einnig hefur hér verið sinnt hvers kyns sérsmíði fyrir bæði hesta og menn.
Í gegnum árin hefur verslunarþátturinn stækkað jafnt og þétt og er nú rekin verslun samhliða söðlasmíðaverkstæðinu. Hér eru vörur fluttar bæði inn og talsvert út líka.

Hvað gerum við?
Hjá verkstæðinu er lögð áhersla á margskonar viðgerðir, breytingar og nýsmíði. Fjölbreytileiki verkefna er mikill.
Viðgerðir
Viðgerðir á reiðtygjum og fylgihlutum – hnökkum, höfuðleðrum, múlum, taumum og töskum.
Senda verkbeiðni →Nýsmíði og sérsmíði
Hvers kyns sérsmíði fyrir bæði hesta og menn, t.d. taumar og kerrubönd í óskalengd og sérmerktir múlar.
Sérpöntun →Baldvin og Þorvaldur söðlasmíðaverkstæði er þjónustuaðili fyrir Eques hnakka.
Sérpöntun
Margar vörur verkstæðisins má sérpanta – taumar í óskalengd, kerrubönd í hvaða lengd sem er og stallmúlar með merkingu. Settu saman og sendu okkur.
Senda verkbeiðni
Lýstu verkinu, sendu myndir og verkstæðið hefur samband. Einnig má hringja í síma 482-1900 eða koma við á Háheiði 2 virka daga 8–16.
Skref 1 af 3
Hvað þarf að laga?
Vörur frá verkstæðinu
Allar →







